Farfuglaheimilið á Vesturgötu er nýr og spennandi kostur fyrir þá sem vilja dvelja í hjarta miðbæjarins. Farfuglaheimilið er staðsett í göngufæri frá öllu því besta sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Á farfuglaheimilinu er gistirými fyrir rúmlega 60 gesti í tveggja, fjögurra og 8-10 manna herbergjum með sér snyrtingum auk tveggja manna herbergja án sér snyrtinga. Sæng og koddi fylgja öllum rúmum. Gestir geta valið um að mæta með eigin rúmföt og búa um sjálfir, að leigja rúmföt á staðnum og búa um sjálfir eða að nota eigin svefnpoka Gestir hafa aðgang að fullbúnu gestaeldhúsi, kaffibar og þráðlausu interneti í setustofu. Farfuglaheimilið er opið allan sólarhringinn, allt árið. Í móttökunni býðst gestum bókunarþjónusta í ferðir og afþreyingu, upplýsingar um önnur farfuglaheimili hér heima og erlendis.
Frá opnun hefur Farfuglaheimilið unnið markvisst að því að takmarka áhrif rekstursins á umhverfið og vinnur undir merkjum Norræna umhverfismerkisins Svansins.
Opnunartímar
Opnunartími móttöku: Móttakan er opin frá 8:00-24:00 Næturvakt frá 24:00